Leikskólakennari - leikskólinn Berg á Kjalarnesi

Reykjavíkurborg Logo

Reykjavíkurborg


Location
Reykjavík
Work Type
On Premise
Employment Type
Full Time
Posted Date
2025-05-08

Leikskólakennari - leikskólinn Berg á Kjalarnesi

Leikskólakennari óskast til starfa við leikskólann Berg á Kjalarnesi. Um er að ræða 100% stöðu (hlutastarf möguleiki).

Berg er tveggja deilda leikskóli sem er hluti af Klébergsskóla, samreknum leik- og grunnskóla ásamt frístundastarfi og tónlistarskóla á Kjalarnesi. Á Bergi eru börn frá 1 árs aldri. Einkunnarorð leikskólans eru virðing, samvinna og metnaður.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara, þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra.

Hæfniskröfur

  • Leikskólakennaramenntun, uppeldismenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi
  • Góð íslenskukunnátta nauðsynleg
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Vilji til að vinna í teymi
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Áhugi á að starfa í teymi og mikilli samvinnu

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt kjarasamningi KÍ.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigrún Anna Ólafsdóttir skólastjóri í síma 664-8271 

[email protected]

Leikskólinn Berg, Kollagrund 6, 116 Reykjavík